Björgvin Viðar Jónsson

Archive for desember, 2011

Neysluvatn !

by on des..16, 2011, under Uncategorized

já .. þetta er líklega síðasta bloggfærslan fyrir langþráð jólafrí. En hún fjallar um gestafyrirlestur á mánudaginn. En þá kom Elsa Ingjaldsdóttir til okkar sem er fulltrúi heilbrigðiseftirlitsins en þar situr hún sem framkvæmdarstjóri. Hún kom og fræddi okkur um vatn, neysluvatn og vatnsból. Hún sagði okkur það til dæmis að það er ekki bara tilviljun að okkur á Íslandi þykja vatnið okkar það besta í heimi.  Vatnið hjá okkur á Íslandi er mög tært enda síast það gegnum berg og hreinsast við það ferli áður en það kemur upp aftur sem lindarvatn.  Einnig talaði hún um sýrustig í vatni en það er mælr í mælieiningunni pH. Þegar sýrustigið er 7 er vatnið hlutlaust en þegar það fer undir 7pH verður það súrt og upp fyrir 7pH verður það basískt. Vatn sem hefur síast gegnum börg berglög er oft með sýrustig í kringum 9 pH og finnst okkur það einna besta vatnið, en svona hátt sýrustig væri í vatninu erlendis myndi leiðnin vera orðin svo há að það væri ekki gott vatn.  En leiðnin er annað mikilvægt atriði, mælieiningunni µ eða micro sensitiviti, við viljum hafa leiðnina undir 100µ en samkvæmt reglum má hún fara upp í 4000µ en sjórinn er með þess háttar leiðni.

Þegar heilbrigðiseftirlitið fer og skoðar vatnsból, athuga þær með örverur í vatninu, sýrustig , leiðni og önnur skaðleg efni. Einnig athuga þau með ýmsar ógeðslar pöddur og lífverur sem geta valdið sýkingum og veikindum eins og sundmannakláða og slíku. Það sem kom mér einna mest á óvart var þegar hún sagði að vatn úr krana væri oftar en ekki mun tærara en þegar þú ferð útí búð og kaupir þér íslenskt vatn !

Í lokin smökkuðu við síðan tvær tegundir af vatni, hitaveituvatn og venjulegt vatn. Við fundum öll munin og fannst okkar það heita flestum mjög vont.

Skemmtilegt og fróðlegur tími !

hér er pistill um ástandið á íslandi :d

Og hér er annar um muninn á norðulöndunum !

Þessi mynd sýnir hvernig hluti af vatninu síast ofan æí fjallið og hreinsast á áður en það kemur upp.  Það setenur underground water !

Leave a Comment more...

Vika 14 ! :D

by on des..13, 2011, under Uncategorized

Þá er vika 14 liðin og var hún nokkuð fín bara. En í mánudadgstímanum var fyrilestratími og í fimmtudagstímanum vorum við slök að skoða blogg, bjuggum til spurningar til prófs  og horfðum aðeins á planet earth. Í föstudagstímanum var síðan vinna í tölvuveri sem við skiluðum inn á bloggið og er hægt að skoða verkefnið mitt inná verkefnabankanum  !

En við erum enþá í jarðfræðinni og því slíku og er ég með smá fróðleik tengdan því !

Innri og ytri öfl

Innri öfl eru hreyfingar og öfl sem koma innan úr jörðinni. Þau eru :

  • Flekahreyfingar
  • Eldvirkni
  • Jarðskjálftar
  • Jarðhiti

Ytri öfl jarðar eru hinsvegar þau öfl og þær hreyfingar sem koma utanfrá, sem er svosem ekkert erfitt að finna út út frá nöfnunum. Ytri öflin eru t.d. :

  • Veður
  • Jöklar
  • Ár
  • Sjór

Innri gerð

Innri gerð jarðar samanstendur af jarðskorpu, möttli, ytri kjarna og innri kjarna. Auðvelt er að líkja jörðinni við egg; jarðskorpan er eins og skurnin, möttullinn eins og hvítan og kjarnarnir eru saman eins og rauðan.

magnað hér,

það héldu margir að jurassic park, væri ómögulegt ég held nú ekki !

Leave a Comment more...

vika 13 !

by on des..06, 2011, under Uncategorized

þessi vika var stutt og laggóð í náttúrufræði, í það minnsta fyrir mig þar sem að ég kom bara í eina kennslustund. En það var á mánudaginn og var það klassískur fyrirlestra tími og á fimmtudeginum var ég veikur en veit ég það að krakkarnir voru í stöðvavinnu og var aðalefni hennar bergtegundir og steinar. Á föstudaginn fór ég síðan til höfuðborgarinnar og voru krakkarnir þá að blogga og horfa á fræðslumyndband !! :)

Það sem vakti mesta áhuga minn þessa viku var umfjöllun um demantana og er fróðleikur hér :D

Leave a Comment more...

Looking for something?

Use the form below to search the site:

Still not finding what you're looking for? Drop a comment on a post or contact us so we can take care of it!