Vika 14 ! :D
by vidar on des..13, 2011, under Uncategorized
Þá er vika 14 liðin og var hún nokkuð fín bara. En í mánudadgstímanum var fyrilestratími og í fimmtudagstímanum vorum við slök að skoða blogg, bjuggum til spurningar til prófs og horfðum aðeins á planet earth. Í föstudagstímanum var síðan vinna í tölvuveri sem við skiluðum inn á bloggið og er hægt að skoða verkefnið mitt inná verkefnabankanum !
En við erum enþá í jarðfræðinni og því slíku og er ég með smá fróðleik tengdan því !
Innri og ytri öfl
Innri öfl eru hreyfingar og öfl sem koma innan úr jörðinni. Þau eru :
- Flekahreyfingar
- Eldvirkni
- Jarðskjálftar
- Jarðhiti
Ytri öfl jarðar eru hinsvegar þau öfl og þær hreyfingar sem koma utanfrá, sem er svosem ekkert erfitt að finna út út frá nöfnunum. Ytri öflin eru t.d. :
- Veður
- Jöklar
- Ár
- Sjór
Innri gerð
Innri gerð jarðar samanstendur af jarðskorpu, möttli, ytri kjarna og innri kjarna. Auðvelt er að líkja jörðinni við egg; jarðskorpan er eins og skurnin, möttullinn eins og hvítan og kjarnarnir eru saman eins og rauðan.
magnað hér,
það héldu margir að jurassic park, væri ómögulegt ég held nú ekki !