Neysluvatn !
by vidar on des..16, 2011, under Uncategorized
já .. þetta er líklega síðasta bloggfærslan fyrir langþráð jólafrí. En hún fjallar um gestafyrirlestur á mánudaginn. En þá kom Elsa Ingjaldsdóttir til okkar sem er fulltrúi heilbrigðiseftirlitsins en þar situr hún sem framkvæmdarstjóri. Hún kom og fræddi okkur um vatn, neysluvatn og vatnsból. Hún sagði okkur það til dæmis að það er ekki bara tilviljun að okkur á Íslandi þykja vatnið okkar það besta í heimi. Vatnið hjá okkur á Íslandi er mög tært enda síast það gegnum berg og hreinsast við það ferli áður en það kemur upp aftur sem lindarvatn. Einnig talaði hún um sýrustig í vatni en það er mælr í mælieiningunni pH. Þegar sýrustigið er 7 er vatnið hlutlaust en þegar það fer undir 7pH verður það súrt og upp fyrir 7pH verður það basískt. Vatn sem hefur síast gegnum börg berglög er oft með sýrustig í kringum 9 pH og finnst okkur það einna besta vatnið, en svona hátt sýrustig væri í vatninu erlendis myndi leiðnin vera orðin svo há að það væri ekki gott vatn. En leiðnin er annað mikilvægt atriði, mælieiningunni µ eða micro sensitiviti, við viljum hafa leiðnina undir 100µ en samkvæmt reglum má hún fara upp í 4000µ en sjórinn er með þess háttar leiðni.
Þegar heilbrigðiseftirlitið fer og skoðar vatnsból, athuga þær með örverur í vatninu, sýrustig , leiðni og önnur skaðleg efni. Einnig athuga þau með ýmsar ógeðslar pöddur og lífverur sem geta valdið sýkingum og veikindum eins og sundmannakláða og slíku. Það sem kom mér einna mest á óvart var þegar hún sagði að vatn úr krana væri oftar en ekki mun tærara en þegar þú ferð útí búð og kaupir þér íslenskt vatn !
Í lokin smökkuðu við síðan tvær tegundir af vatni, hitaveituvatn og venjulegt vatn. Við fundum öll munin og fannst okkar það heita flestum mjög vont.
Skemmtilegt og fróðlegur tími !
hér er pistill um ástandið á íslandi :d
Og hér er annar um muninn á norðulöndunum !
Þessi mynd sýnir hvernig hluti af vatninu síast ofan æí fjallið og hreinsast á áður en það kemur upp. Það setenur underground water !

