Archive for janúar, 2012
Leikur..
by vidar on jan..27, 2012, under Uncategorized
Það var aðeins einn tími í náttúrufræði þessa vikuna og var það fötudagstíminn og vorum við allan tímann í leik sem hét skate park. Í honum vorum við á hjólabretti að renna eftir braut og gátum við ráðið um nokkra staði og plánetur og þyngd. Ég komst að því að ef maður er í kringum 100 kg með mesta mögulega þyngdarkraftinn fer maður hraðast. Þegar hlutirnir náðu ákveðinni ferð jókst varmaorkan til muna og ef maður var í geimnum fylgdi maður ekki brautinni heldur sveif maður bara um. Orka hverfur aldrei heldur breytir bara um mynd .
Endir Vísindavöku !
by vidar on jan..17, 2012, under Uncategorized
já… enn ein vikan liðinn og var vísindavaka það sem stóð hæst í vikunni
Í mánudagstímanum gerðu flestir hópar sínar tilraunir, og þar á meðal við strákarnir sem tókum að okkur það verðuga verkefni að eima skít. Það kom talsverð skíta lykt en við bjuggumst nú samt við því verra
Á fimmtudaginn vorum við síðan að vinna úr niðurstöðunum sem við settur fram á power-point sýningu sem við áttum að kynna í föstudagstímanum en það fór þannig að enginn varð skólinn og færðust þær því yfir á mánudaginn !
ég ætla að segja aðeins frá því hvað við gerðum og niðurstöður
Tilrauninn okkar var sem sagt að eima skít og athuga hvort hægt væri að kveikja í eða sprengja lofttegundina sem myndi myndast. Það sem við þurftum að nota var :
- Tækjagrind
- 6 brennarar
- 2 mæliglös
- 2 mælikönnur
- 8 spennur
- 4 glerglös
- Kúamykju
- Kindaskít
- Rokeldspýtur
og leit þetta þá svona út :
Þegar þessu var lokið og við vorum búnir að eima skítinn.. reyndum við að kveikja í þessu og gekk það ekki eftir, því við náðum ekki að búa til metan
Niðurstöður:
Okkur tókst ekki að gera áætlunar verk okkar sem var að búa til metan og brenna það. Það kom eitthver loftegund í glösin en þar sem við höfðum nú ekki allar græjur vitum við ekki hvaða lofttegund það var. Það sem gerðist með kúa mykjunni var það að við settum líklega of mikinn skít í hylkið, sem varð til þess að það myndaðist þrýstingur og skaust glasið af tappanum og skíturinn fór út um allt ! Það sem varð okkur líklega að falli við nánari rannsóknir var það að við vinnslu metans er haugurinn hitaður rólega og hægt og látið malla en ekki snögg hitað og stutt eins og að við gerðum.
ég held að þetta sé gott í bili..
Blahh;)
Nýtt ár og ný tækifæri:) vísindavaka !
by vidar on jan..10, 2012, under Uncategorized
já.. þá er maður mættur aftur til starfa eftir rólegt og gott jólafrí. Það var þó ekki nema einn náttúrufræði tími í vikunni vegna þess að við byrjuðum ekki fyrr en á þriðjudaginn. Á fimmtudaginn byrjuðum við á nýjum hlekk og er það vísindavaka og eru þá nokkrir saman í hóp (2-4) og gera þeir tilraun og vinna úr niðurstöðunum
Á föstudaginn var síðan mikil hálka og var því enginn skóli :p
Við erum fjórir saman og ætlum að eima skít bæði lambaskít og kúaskít. Að því loknu ætlum við að athuga hvort lofttegundinn sem myndast sé eldfim. Við ætlum að vinna niðurstöður úr power-point með myndum, myndbandi og slíku.
Gott í bili..
