Björgvin Viðar Jónsson

Endir Vísindavöku !

by on jan..17, 2012, under Uncategorized

já… enn ein vikan liðinn og var vísindavaka það sem stóð hæst í vikunni :D Í mánudagstímanum gerðu flestir hópar sínar tilraunir, og þar á meðal við strákarnir sem tókum að  okkur það verðuga verkefni að eima skít.  Það kom talsverð skíta lykt en við bjuggumst nú samt við því verra :D Á fimmtudaginn vorum við síðan að vinna úr niðurstöðunum sem við settur fram á power-point sýningu sem við áttum að kynna í föstudagstímanum en það fór þannig að enginn varð skólinn og færðust þær því yfir á mánudaginn !

ég ætla að segja aðeins frá því hvað við gerðum og niðurstöður :P

Tilrauninn okkar var sem sagt að eima skít og athuga hvort hægt væri að kveikja í eða sprengja lofttegundina sem myndi myndast. Það sem við þurftum að nota var :

  • Tækjagrind
  • 6 brennarar
  • 2 mæliglös
  • 2 mælikönnur
  • 8 spennur
  • 4 glerglös
  • Kúamykju
  • Kindaskít
  • Rokeldspýtur

og leit þetta þá svona út :

Þegar þessu var lokið og við vorum búnir að eima skítinn.. reyndum við að kveikja í þessu og gekk það ekki eftir, því við náðum ekki að búa til metan :P

Niðurstöður:

Okkur tókst ekki að gera áætlunar verk okkar sem var að  búa til metan og brenna það. Það kom eitthver loftegund í glösin en þar sem við höfðum nú ekki allar græjur vitum við ekki hvaða lofttegund það var. Það sem gerðist með kúa mykjunni var það að við settum líklega of mikinn skít í hylkið, sem varð til þess að það myndaðist þrýstingur og skaust glasið af tappanum og skíturinn fór út um allt ! Það sem varð okkur líklega að falli við nánari rannsóknir var það að við vinnslu metans er haugurinn hitaður rólega og hægt og látið malla en ekki snögg hitað og stutt eins og að við gerðum.

ég held að þetta sé gott í bili..

Blahh;)

 

 


Leave a Reply

Looking for something?

Use the form below to search the site:

Still not finding what you're looking for? Drop a comment on a post or contact us so we can take care of it!