Uncategorized
Síðasta blogg ársins !!!!!
by vidar on maí.17, 2012, under Uncategorized
Þá er komið að því.. síðasta blogg mitt í flúðaskóla er að rissast niður á blað akurat núna ! söguleg stund hér á ferð. Erfitt fyrir aðdáendur mína.. en ég veit allt gott endar einhvertíman !
En þessi vika var eins og þær síðustu upprifjun og þægilega rólegar. En á mánudaginn vorum við að vinna upprifjunarhefti og á fimmtudaginn vorum við æi umræðum um ýmislegt auk þess sem við tókum verkefni um formúlur. Hröðun, Skriðþunga og þess háttar !
þú ert ekki viss hvernig þú reiknar það þá er það hér.
Næst síðasta vika fyrir lokapróf !
by vidar on maí.08, 2012, under Uncategorized
Þá er næst síðasta vikan fyrir lokapróf á enda og var hún líka svona ljómandi fín ! Héldum áfram í upprifjunarheftum og gerðum eitt og annað til að undirbúa okkur fyrir þessi blessuðu lokapróf ! En það er nú vor í lofti og verður fátt sætara heldur en að sleppa í sumarfrí og segja loksins laus úr þessum blessaða skóla !
En þar sem vorið er komið læt ég þetta gott heita þessa blessuðu vikuna !
Alveg að klárast !
by vidar on maí.01, 2012, under Uncategorized
jæja.. þá er þetta alveg að klárast aðeins örfáar vikur eftir. En síðasta vika var nú bara sæmileg. Á mánudaginn vorum við að klára upprifjunarverkefninn okkar og á fimmtudaginn fórum við út í skóg að vinna verkefni og velta fyrir okkur lífríki og vistkerfum. Við lukum síðan vikunni í tölvuveri þar sem við skoðuðum áhugaverðan link um allt frá því smærsta upp í það stærsta í heiminum. Eftir það fórum við í upprifjunarprófin hans Einars.
Ef einhver á erfitt með líffræðina þá er þetta góður linkur
Fæðuvefur :
Alltaf gott að rifja upp ljóstillífun :
16-20 Apríl !
by vidar on apríl.24, 2012, under Uncategorized
Enn ein vikan á enda og var hún ágæt. Á mánudaginn var Gyða veik og var lítið um kennslu þá. Sumardagurinn fyrsti var síðan á fimmtud. og á föstudaginn var deilt okkur í hópa og áttum við að gera upprifjunarverkefni fyrir samnemendur okkar. Hver hópur valdi sér viðfangsefni og verkefnið okkar Guðjóns leit svona út : (flokkunarfræði)
Flokkunarfræði
Fyrsta flokkunarkerfið var gert á fjórðu öld fyrir krist, það var hinn gríski Aratóles en hann flokkaði þau í þrjá flokka, fleyg dýr, synd dýr og gangandi dýr. Carl Von Linne settir fram tvínafnakerfið en þar gaf hann öllum dýrum tvö nöfn, oftast á Latnesku hið fyrra er heiti ættkvíslar og það seinna er nafn tegundar sem dæmi Homo Sapiens. Homo nær yfir menn og mannapategundir en sapiens skilgreinir manneskju frá þeim.
Flokkarnir sem flokkað eru sjö, Ríki er víðtækast svo kemur fylking, Flokkur, ættbálkur, ætt, ættkvísl og að lokum tegund sem er sértækasta hugtakið. Ríkin eru 5 Dreifkjörnungar, Frumverur, Sveppir, Plöntur og Dýr.
|
Heiti |
Með kjarna |
Einfruma |
Fjölfruma |
Frumbjarga |
Án kjarna |
Ófrumbjarga |
| Dreifkjörnungar |
|
x |
|
x |
x |
x |
| Frumverur |
x |
x |
|
x |
|
x |
| Sveppir |
x |
x |
x |
|
|
x |
| Plöntur |
x |
|
x |
x |
|
|
| Dýr |
x |
|
x |
|
|
x |
Greining 2 lífvera
|
Ríki |
Dýraríki | Plönturíki |
|
Fylking |
Seildýr | Æðplöntur |
|
Flokkur |
Spendýr | Dulfrævingur |
|
Ættbálkur |
Rándýr | Sóleyjabálkur |
|
Ætt |
Kattætt | Sóleyjaætt |
|
Ættkvísl |
Stórkettir | Sóleyjar |
|
Tegund |
Ljón, Panthera Leo | Brennisóley, Ranunculus acris |
Hver bjó til tvínafnakerfið og hvernig virkar það ?
Ef þú þyrftir að búa til þitt eigið flokkunarkerfi, hvernig væri það ?(fjöldi undirflokka og fleira)
gott í bili:)
09-13 Apríl !
by vidar on apríl.17, 2012, under Uncategorized
Áfram höldum við í upprifjun fyrir lokapróf. Í þessari viku vorum við í líffræði og svei mér þá held ég að þetta sé nú að sýjast inn. En á mánudaginn var páskafrí og í fimmtudagstímanum var fyrirlestur. Við lukum síðan vikunni í tölvuveri þar sem við héldum áfram í upprifjunarprófum. Gekk það bara ágætlega.
Eitt af því sem við fjölluðum um var ljóstillífun enda er hún nauðsynleg til þess að það þrífist líf. meira hér
Einnig töluðum við um skipulagsstig, en þau eru fimm og eru eftirfarandi :
1. Fruma
2. Vefur
3. Líffæri
4. Líffærakerfi
5. Lífvera
Algengustu frumefni í lífverum eru kolefni, vetni, nitur og súrefni. Efnaskipti eru öll efnahvörf sem fara fram í lífveru og eru nauðsynleg til að viðhalda lífi. Næringarnám, melting, öndun og þveiti eru mikilvægir þættir efnaskipta og eiga sér stað í öllum lífverum. Æviskeið er sá tími sem hver lífvera lifir. Lífverur bregðast við áreiti, sen er breyting í umhverfi þeirra með því að sýna eitthvað viðbragð. Æxlun er ferli sem lífverur eignast eittt eða fleiri afkvæmi í sinni mynd.
Munurinn á frumbjarga og ófrumbjarga lífveru.
19-23 MARS ! SÝRUSTIG !
by vidar on mars.27, 2012, under Uncategorized
Enn ein vikan er þá búinn. Í þessari viku fjölluðum við um sýrustig. Ég var ekki á mánudaginn og missti fyrir vikið af massífum fyrirlestra tíma. Í fimmtudagtímanum var síða stöðvavinna og þar af voru tvær tilraunir en skýrslan af þeim má finna í verkefnabanka. Önnur gekk út á að finna sýrustig og hin gekk útá að reyna að búa til litakóða með vöknum og raukálssoði, allt um það í skýrslunni
í föstudagstímanum vorum við síðan að vinna skýrslu úr tilraununum
Stöðvavinna :
Við (ég, Ari og Sandra D) gerðum 2 aðrar stöðvar heldur en tilraunirnar
Stöð 1
Fórum inn á síðu og gerðum verkefni um fjölda róteinda, rafeinda og nifteinda í ýmsum efnum úr lotukerfinu. okkur gekk svona líka glæsilega.. allt villu laust.
Stöð 2.
Fengum verkefni og áttum að reikna út atómmassan ef ég man rétt. Virkaði erfitt en þegar maður byrjaði var þetta líka svona svakalega einfalt. Notuðum lotukerfið til stuðnings
Sýrustig
Sýrustig (hugtakið pH-gildi er notað þegar tala er tilgreind) er í efnafræði mælikvarði fyrir hversu súr vökvi er. Sýrustig er skilgreint sem logrinn af umhverfu styrks vetnisjóna í lausninni. Gildi frá 0 til 7 tákna súra lausn, þ.e. sýru (því súrari sem gildið er lægra), gildið 7 táknar hlutlausa lausn, og gildi frá 7 og upp í 14 táknar basíska lausn (því basískari sem gildið er hærra).
rauður héðan
meira um þetta hér
11-16 Mars
by vidar on mars.20, 2012, under Uncategorized
Í mánudagstímanum vorum við að ræða mismunandi virkjanakosti og ræddum við virkjanir í Þjórsá og Hvíta auk þess sem við skoðuðum hvað myndi gerast ef þær virkjanir sem eru í umræðunni yrðu byggðar.
Á fimmtudaginn var Gyða með okkur í 3 tíma en það var vegna þess að Evelyn þurfti að fara á námskeið og sat þá Gyða yfir okkur í ensku áður en við fórum síðan öll saman í náttúrufræði. Þar ræddum við um blogg áður en við fórum síðan að horfa á fræðslumynd sem heitir Power of the Planet. Þar var fjallað um líf á eyjaklasa í miðjarðarhafinu. Aðallega um fuglalíf en einnig um eðlur og önnur dýr.
Við enduðum síðan vikuna niðri í tölvuveri þar sem við tókum hin ýmsu sjálfspróf í öllu mögulegu og sögðum Gyðu frá útkomunum. Ég kom nú bara ágætlega útúr þeim og held ég að aðrir hafi gert það líka
Vatnsaflsvirkjanir Skýringar mynd !
Rafall úr vatnsfallsvirkjun mynd :
Fyrirhugaðar virkjanir í þjórsá eru (afl í sviga):
- Hvammsvirkjun (85MW)
- Holtavirkjun (53MW)
- Virkjun við Urriðafoss (130MW)
Mynd sem sýnir hvar þær liggja
Meira um þetta hér
gott í bili
Tíminn tifar.. u.þ.b. 50 skóladagar eftir !
by vidar on mars.13, 2012, under Uncategorized
Á mánudaginn héldum við áfram að fara yfir samræmda prófið sem við gerðum vikuna þar áður. Á fimmtudaginn var síðan stórskemmtileg PISA könnun fyrir hádegi og tók Gyða þá þessa líka stórgóðu ákvörðun að leyfa okkur bara að slaka á, máttum velja hvort við horfðum á myndina Tropic Thunder eða færum uppí stofu og færum í spurningakeppni. Við enduðum síðan vikuna á því að vera í tölvuveri, skoða fréttir og fórum í leik sem var upprifjun úr mannslíkamanum, áttum að setja líffærakerfið eða beinagrindina saman t.d.
ágætis myndband um virkni mannslíkamans
Náttúrufræði:P áfram upprifjun !
by vidar on mars.06, 2012, under Uncategorized
já .. Áfram héldum við í því að rifja upp fyrir lokaprófið. Við vorum að vinna í gömlu samræmdu prófi á mánudaginn og síðan var skólahreysti á fimmtudaginn, á föstudaginn fórum við síðan yfir gamla prófið
Mér gekk ágætlega í þessu en samt svolítið sem þyrfti að rifja upp.
það helsta sem ég er ekkert alveg pottþéttur í er flokkast undir lífvísindi og þá helst eitthvað tengt örverum.
Bakteriu myndband mörg önnur gagnleg við hliðina á þesssu
Var að byrja í ökutímum, bóklegum og þar var mér sýnt þetta.. sem mér fannst magnað. Þá var það reyndar dekk sem þeir sprengdu. en maður gerir sér enga grein fyrir því hversu mikill kraftur er í svona loftpúða í bílum. og eitt en
ný önn og skemmtilegheit !:D
by vidar on feb..28, 2012, under Uncategorized
í Síðustu viku hófst ný önn með pompi og prakt. Þar sem Gyða segist vera búinn að kenna okkur allt það sem telst til námskráar verður þrjiðja önninn að mestu leyti upprifjun fyrir lokapróf. Og var þessi vika byrjunin á því. En við vorum að spjalla um 3 önnina á mánudeginum og gerðum svo heilabrota dæmi á fimmtudaginn. Og byrjuðum á að vinna gamalt samræmt próf sem við héldum síðan áfram í á föstudeginum. Ég verð að segja að ég get nú ekki sagt að ég sé að fara að skora hátt ef lokaprófið verður eitthvað í líkingu við þetta. En það er seinna tíma vandamál.
veriði bless í bili !





